ASK Arkitektar

ASK, arktektar, Geirsgata, Geirsgötu,

News

Borgir teknar formlega í notkun

Rannsókna- og nýsköpunarhús við Háskólann á Akureyri var tekið formlega í notkun í dag og við það tækifæri var því gefið nafnið "Borgir".

Húsið var byggt í framhaldi af einkframkæmdarútboði þar sem tillaga ASK sem unnin var fyrir og í samstarfi við bjóðendurna ÍAV, Landsafl og ISS á Íslandi, varð í fyrsta sæti. Í ræðu menntamálaráðherra við opnun hússins kom fram að hér væri í raun um að ræða fyrsta eiginlega "þekkingarþorpið" á Íslandi enda þótt aðeins væri um eitt hús að ræða en í húsinu hafa eftirtaldar stofnanir aðsetur sitt: Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Byggðarannsóknastofnun Íslands, CAFF, Ferðamálasetur Íslands, auðlinda- og upplýsingatæknideildir Háskólans á Akureyri, Hafrannsóknastofnunin, Impra/Iðntæknistofnun, Jafnréttisstofa, Matvælasetur HA, Náttúrufræðistofnun Íslands, Akureyrarsetur, Orkustofnun, Orkusjóður, PAME, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Veðurstofa Íslands, Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunnar og aðalskrifstofa Háskólans á Akureyri.







Fjölmenni var við opnunina í dag, þar á meðal fimm ráðherrar ríkisstjórnar, enda eru margar mismunandi stofnanir sem heyra undir ólík ráðuneyti í húsinu. Það mun vonandi skapa fjölbreytt "rannsókna- og skólamannlíf" og ekki er að efa að kaffistofan á 2. hæð þar sem opnunarsamkoman fór fram í dag mun skapa ramma um það í framtíðinni.

Skoða myndir.



Division

Content presentation

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Authentication