Leikhús í Vetrargarði Smáralindar
Vetrargarður Smáralindar var á sínum tíma hannaður sem fjölnotarými fyrir ýmis konar afþreyingu. Á þeim 2-3 árum sem liðin eru frá opnun Smáralindar hefur enda farið fram ótrúlega fjölbreytt flóra viðburða ss. sýningar af ýmsum toga, tónleikar, matreiðslukeppni og hreystikeppni. Stórir sjónvarpsviðburðir hafa einnig farið fram í Vetrargarðinum ss. spurningakeppni framhaldsskólanna og Idol-keppnin sl. vetur.
Nú hefur verið bætt í þessa flóru viðburða með því að byggja leikhús í Vetrargarðinum. Um er að
ræða laust og færanlegt leikhús sem útfært er þannig að hægt er að taka það niður og setja upp á 2-3 dögum.
Hönnun leikhússins var unnin af ASK í samvinnu við starfsfólk Smáralindar og Sviðsmynda ehf sem sáu um smíði og uppsetningu skermveggja
umhverfis leikhúsið.




