Mies van der Rohe verðlaunin
Wednesday 04.October 2006
Frístundahús í Götu í Hrunamannahreppi var nýlega tilnefnt til Mies van der Rohe verðlaunanna 2007 fyrir Evrópskan
nútímaarkitektúr, ásamt Bláa lóninu.
Mies van der Rohe verðlaunin eru veitt annað hvert ár fyrir
framúrskarandi evrópska nútímabyggingarlist. Þau verk sem hljóta tilnefningar þurfa að einkennast af vandaðri og góðri hönnun,
nýbreytni og vönduðum frágangi og útfærslu. Aðeins verk félagsmanna AÍ koma til greina, byggð hérlendis eða erlendis. Byggingu
verksins þarf að vera eða hafa verið lokið á tímabilinu 1. janúar 2005 - 31. desember 2006. Val íslensku tillagnanna var framkvæmt af valnefnd
á vegum Arkitektafélags Íslands. Skoða verk

