ASK Arkitektar

ASK, arktektar, Geirsgata, Geirsgötu,

Fréttir

2. verðlaun í Mosfellsbæ

Tillaga ASK Arkitekta hlaut önnur verðlaun í opinni hugmyndasamkeppni um menningarhús og kirkju í Mosfellsbæ. Mosfellsbær og Lágafellssókn efndu til samkeppni um hönnun á sameiginlegu menningarhúsi og kirkju í miðbæ Mosfellsbæjar í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Markmið með hugmyndasamkeppninni var meðal annars að laða fram fjölbreyttar og metnaðarfullar hugmyndir að menningarhúsi og kirkju er mynduðu sterka starfræna og byggingarlistarlega heild. Um leið væri  stuðlað að samvinnu til eflingar kirkju- og menningarstarfsemi, er yrði bæjarfélaginu til sóma og menningarlífi bæjarins til framdráttar. Áhersluatriði dómnefndar við mat á lausnum voru m.a. að heildaryfirbragð byggingarinnar endurspeglaði framsækna byggingarlist, að byggingin félli vel að umhverfi sínu og yrði sveigjanleg í notkun. Gert er ráð fyrir að í húsinu verði fjölbreytt starfsemi á vegum kirkju og menningarhúss, svo sem hefðbundið kirkjustarf, safnaðarsalur, bókasafn, lista- og tónlistarsalir og veitingarekstu.

Tillöguna má skoða hér.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning