ASK Arkitektar

ASK, arktektar, Geirsgata, Geirsgötu,

Fréttir

ASK flytur sig um set

Föstudaginn 11. mars verður lokað hjá okkur vegna flutnings teiknistofunnar. Aðalsímanúmer stofunnar verður lokað þennan dag en við bendum þeim sem nauðsynlega þurfa að ná í okkur á að hringja í farsíma eigenda.

Skógarhlíð 18Kafla er lokið í sögu ASK og nýr hefst þegar við flytjum okkur um set í bænum, frá Skógarhlíð 18, þar sem við höfum haldið til frá því um jól 1991, í Geirsgötu 9.

 





Þar munum við koma okkur fyrir á 2. hæð hússins sem manna á milli er kallað "Hafnarbúðir", enda stendur það á bakka Reykjavíkurhafnar. 
Í nýja húsnæðinu sameinast starfsfólk ASK og Arcus og þá tekur einnig gildi nýtt veffang stofunnar: http://www.ask.is/. Póstföng starfsfólks breytast við þetta í nafn@ask.is en bæði vefur og tölvupóstur virkar þó, amk. fyrst um sinn, einnig áfram á arkitektar.is.
Aðalsímanúmer sameinaðs fyrirtækis verður 515 0300 (sama og hjá ASK áður) og beinir símar skv. "Starfsfólk" hér að ofan.

Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem flutningur og lokun kann að valda viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum en bjóðum þá velkomna til okkar í Geirsgötu 9 þar sem Kaffitárskaffið mun smakkast amk. jafn vel og í Skógarhlíðinni!



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning