ASK hlaut 1. verðlaun í samkeppni á Selfossi
sunnudagur 28.janúar 2007
Í dag voru úrslit tilkynnt í opinni framkvæmdasamkeppni um miðbæ Selfoss og hlaut tillaga ASK arkitekta 1. verðlaun.
Meginhugmynd
Höfundar telja mikilvægt að leggja áherslu á ásýnd bæjarins þegar komið er yfir Ölfusárbrú. Brúartorg mun
samkvæmt okkar tillögu þjóna hlutverki sínu áfram. Þegar þjóðvegur 1 verður færður minnkar umferð um miðbæinn
töluvert og þó sérstaklega umferð þungaflutninga. Brúartorgið verður áfram þungamiðja akandi umferðar og því
mikilvægt að þar séu skýrar leiðir að fjölbreyttri þjónustu miðbæjarins. Við leggjum til að upplýstri höggmynd
eða vatnslistaverki verði komið fyrir á torginu, td. með tilvísun í sögu bæjarins eða núverandi starfsemi.

