ASK og Landmótun í leikskóla
miðvikudagur 22.september 2004
Fyrr í haust var á vegum Dagvistar barna opnaður nýr leikskóli á Kjalarnesi. ASK hannaði byggingu en Landmótun lóð. Starfsfólk
stofanna tveggja hittist á dögunum í leikskólanum og kíkti á verk sín saman.
Reykjavíkurborg auglýsti í
upphafi forval vegna hönnunar leikskólans sem skyldi gerður með markmið um sjálfbæra þróun.

Stofurnar fengu verkið á grundvelli fyrri starfa við vistvæna hönnun.
Það var því vel til fundið að hittast, skoða árangurinn og snæða ?pikknikk? við húsvegginn, þótt suðvestan kalsinn hafi
valdið nokkrum skjálfta. Meira að segja tókst að skála í portvínstári !!

