BYKO Selfossi opnar
laugardagur 26.júní 2004
Í dag var opnuð ný verslun BYKO á Selfossi. Í húsinu er smávöruverslun og timbursala. ASK sá um hönnun hússins fyrir ÍAV
sem var aðalverktaki.
Verslunarhluti hússins er einfalt
stálklætt stálgrindarhús sem skipt er í tvennt með millivegg. Í öðrum helmingi hússins er lágmarksupphitað rými sem
í er akfær timbursala sem BYKO-menn kalla "hlaðbraut" (á enskunni "drivethru"). Í hinum helmingnum er smávörverslun í fullupphituðu
rými. Innangengt er milli verslunarhlutanna og viðskiptavinum timbursölu þannig gert kleift að klára öll viðskipti áður en ekið er
útúr húsinu.
Tengd smávöruverslunarhluta er anddyris-/ og skrifstofubygging á
tveimur hæðum og er hún einnig byggð úr stáli en klædd með steinflísum.

