ASK Arkitektar

ASK, arktektar, Geirsgata, Geirsgötu,

Fréttir

EGO

Fyrsta EGO sjálfsafgreiðslustöðin hefur verið tekin í notkun og er hún við Vatnagarða í Reykjavík (við bílastæði IKEA). ASK hannaði stöðina sem verður raðsmíðuð og sett upp víðar.

EGÓ stöðÍ júli 2002 var ASK arkitektum falið að gera tillögur að nýjum hraðstöðvum Olíufélagsins ehf.  Tillögurnar voru unnar út frá markaðshugmyndum sem Olíufélagið hafði mótað og útkoman var  EGO stöðin.

 

Helstu markmið hönnunnar:

  • Skapa stöð sem er skjólgóð og hlýleg
  • Skapa stöð sem er afgerandi, hefur "sérkenni", og greinir sig klárlega frá keppinautunum.
  • Skapa stöð sem er greinir sig með eigið "BRAND"
  • Skapa stöð sem væri í fararbroddi hvað varða nýjungar

Hugmynd hönnunar:

Hugmynd EGO stöðvarinnar snýr að samspili skyggnis sem  er mótað í afgerandi form sem minnir á boomerang eða flugvélavæng og skjólveggs sem inniheldur tækniskápa og auglýsinga-/glerveggi. Saman mynda skyggni og skjólveggur sterka heildarmynd sem lýsir sér í  þróttmikilli hönnun og sérkennum en býður jafnframt upp á þægilegt og skjólgott umhverfi fyrir notandann.

Teikningar og myndir.



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning