ASK Arkitektar

ASK, arktektar, Geirsgata, Geirsgötu,

Fréttir

Fyrstu verðlaun í Hveragerði

Tillaga ASK Arkitekta hlaut fyrstu verðlaun í opinni framkvæmdakeppni um skipulag miðbæjar Hveragerðis. Hveragerðisbær efndi til samkeppni um hönnun miðbæjar Hveragerðis. Samkeppnissvæðið er tvískipt, annars vegar er svo kallað "heildarsvæði" sem nær til núverandi miðbæjar þar sem er að finna ýmis konar verslunar- og þjónustufyrirtæki og nokkrar af helstu stofnunum bæjarins, hins vegar er "kjarnasvæði", sem liggur innan heildarsvæðisins. Megin áhersla var lögð á hönnun kjarnasvæðisins. Úrslit í samkeppninni voru kunngjörð í dag og hlaut tillaga ASK Arkitekta fyrstu verðlaun.

Skoða tillögu.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning