Lalli Johns vill inn í hlýjuna

Lalli Johns er einn þeirra fjölmörgu sem búa á götum Reykjavíkur en á þá ósk heitasta að komast að í smáhýsum sem reist hafa verið við Fiskislóð. Hann þráir að snúa blaðinu við og langar til að vinna. Gert er ráð fyrir að húsin verði fullbúin í vikulok. Enn er ekki búið að úthluta þeim en það verður gert á næstu dögum og vonir standa til að hægt verði að flytja inn í næstu viku.
Síðustu árin hefur Lalli hafst við í Gistiskýlinu í Þingholtsstræti á milli þess sem hann hefur búið á götunni eða verið í fangelsi. „Ég er búinn að standa í þessu í fleiri fleiri ár en fæ hvergi inni. Síðan er alltaf verið að minnka örorkuna hjá manni. Mér finnst ég því eiginlega bara vera hvattur til að stela,“ segir hann um þá aðstoð sem íslensk yfirvöld veita honum. (úr DV í dag)

