ASK Arkitektar

ASK, arktektar, Geirsgata, Geirsgötu,

Fréttir

Miklar breytingar hjá ASK

Um sl. áramót komu Gunnar Borgarson arkitekt og Gunnar Örn Sigurðsson arkitekt inn í eigendahóp Arkitekta Skógarhlíð ehf og í þessarri viku var gengið frá sameiningu arkitektastofanna Arcus ehf og Arkitekta Skógarhlíð ehf undir nafninu ASK Arkitektar.


Gunnar Örn Sigurðsson
Gunnar Örn er fæddur í Reykjavík árið 1966 og lauk námi í arkitektúr frá Technische Universität Berlin árið 1996.
Vann með námi hjá Atalier Kroh, Golan und Zareh og eftir nám hjá Schmiedeskamp architekten en hefur starfað hjá ASK síðan í júní 1997. 

 



Gunnar er fæddur 1958 og lauk meistaranámi í arkitektúr frá Tekniska Högskolan í Helsingfors árið 1989. Meðan á námi stóð vann hann m.a. hjá ark. Simo Järvinen en rak eigin stofu frá 1990-2000. Gunnar hefur starfað hjá ASK frá ágúst  2000.

 



Hörður Harðarson
Hörður er fæddur í Reykjavík 1949 og lauk sveinsprófi í húsasmíði 1970, námi í byggingatæknifræði 1974 og námi í arkitektur frá Kunstakademiets Arkitektskole  (deild prof. Knud Holschers) í  Kaupmannahöfn  1985.  Vann hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins 1975-80  og í samvinnu við teiknistofu Harðar Björnssonar 1985-86. Vann við sjálfstæðan atvinnurekstur frá 1986 og meðeigandi teiknistofunnar Arcus ehf frá 1998.
Hörður hefur starfað hjá ASK  frá sameiningu ASK og Arcus í febrúar 2005.




Þorsteinn Helgason
Þorsteinn er fæddur í Reykjavík 1958 og lauk námi í  byggingafræði  frá Byggetekninsk Højskole, Kaupmhöfn 1983 og námi  í arkitektúr frá  Kunstakademiets Arkitektskole (deild prof. Knud Holschers) í Kaupmannahöfn 1988. Starfaði meðfram  námi  m.a. hjá ark. Krohn og Hartvig  Rasmussen og eftir nám  hjá Teiknistofu  Dissing og Weitling  1988-89.   Starfaði  hjá Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar  1989-93. Vann við sjálfstæðan atvinnurekstur 1993 og meðeigandi  teiknistofunnar Arcus ehf frá 1998. Þorsteinn hefur starfað hjá ASK frá sameiningu ASK og Arcus í febrúar 2005.



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning