Nýtt útlit
fimmtudagur 21.apríl 2005
I tengslum við breytingar sem orðið hafa að undanförnu hjá ASK hefur verið hannað nýtt lógó fyrir stofuna.

Nýja lógóið sem hannað er af Þórhildi Jónsdóttur auglýsingateiknara hefur þegar verið tekið í notkun og því farið að birtast bæði hér á vefsíðu ASK, teikningum og öðru efni stofunnar. Lógóið mun birtast í gulum lit þar sem litur á við en einnig svart, hvítt eða grátt eftir þörfum. Kjarni lógósins eru þrír þríhyrningar sem saman mynda ferning. Textinn "ASK arkitektar" eða bara "ASK" er síðan ýmist undir ferningnum eins og hér til vinstri eða til hliðar eins og sést efst á vefsíðunni.

