Þjónustustöð Olíufélagsins í Mosfellsbæ
fimmtudagur 18.desember 2003
Í dag opnaði Olíufélagið þriðju þjónustustöðina sem byggð hefur verið eftir hönnun ASK.
Þær fyrri eru á
Ártúnshöfða og við Borgartún en í tengslum við stöðina í Mosfellsbæ var einnig byggð þvottastöð með
sjálfvirkri bílaþvottavél og fjórum handþvottabásum. Þvottastöðin er rekin af Löðri. Í
þjónustuhúsinu sem er um 310 m² að stærð er Nestisverslun og veitingastaðurinn Subway.

