Tinna Björk og Stekkjarás

Leikskólinn Stekkjarás var afhentur við formlega athöfn 15. okt. sl., eða um ári eftir að verkhönnun hans hófst að afloknu alútboði. Starfsemi hófst í ágúst en þá voru fjórar deildir af átta teknar í notkun ásamnt kjarnabyggingu sem í eru salir, eldhús, starfsmannaaðstaða og fl. Deildir skólans verða átta alls og munu fjórar síðustu deildirnar verða afhentar á næstu vikum.

Meðal gesta við afhendingu voru mæðgurnar Sigurlaug Sigurjónsdóttir og dóttir hennar Tinna Björk Bergsdóttir sem fæddist þ. 27.
apríl sl. Sigurlaug er einn starfsmanna ASK og meðal verkefna hennar var einnmitt verkhönnun leikskólans Stekkjaráss sem hún náði að ljúka
áður en Tinna Björk kom í heiminn. Meðganga þessarra tveggja var því samhliða hjá Sigurlaugu.
Myndin til vinstri er af þeim mæðgum við afhendingu leikskólans, tekin í einum fataklefanum. Tinna Björk á greinilega nöfnu í
leikskólanum eins og ef til vill má greina á fatahólfsmerkinu á bakvið þær.

