ASK Arkitektar

ASK, arktektar, Geirsgata, Geirsgötu,

Fréttir

Viðbygging við Fjölbrautarskóla Suðurnesja

Nýlega var tekin í notkun ný viðbygging við Fjölbrautarskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ. ASK gerði alútboðstillögu með Trésmiðju Hjalta Guðmundssonar ehf vorið 2003 og varð tillagan í 1. sæti. Alútboð var haldið að undangengnu forvali.

Við upphaf skólaárs 2004 - 2005 var tekin í notkun ný viðbygging við Fjölbrautarskóla Suðurnesja. 

Viðbyggingin sem er rúmlega 3.000 m² að stærð rúmar aðalinngang skólans, stjórnunarrými, samkomu- og matsal fyrir 5-600 manns, auk bókasafns, fyrirlestrarsalar, almennrakennslustofa og sérstakra kennslustofa fyrir líf-jarð- og eðlisfræði, sjúkraliða ofl. 

Aðstæður við framkvæmd voru nokkuð erfiðar þar sem viðbyggingin byggist saman við og tengist eldri skóla, auk þess sem byggt er utan í eldra íþróttahús. Jafnframt er yfirbyggður gangur utanhúss sem tengir nýbyggingu við eldri skóla. Byggingin er 3ja hæða, steinsteypt, einangruð að innan og steinuð að utan.



Eftir er að ljúka lokafrágangi utanhúss auk frágangi lóðar sem Landark hefur hannað.

 

Skoða myndir.

 



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning