ASK Arkitektar er alhliða arkitektastofa sem fæst við hefðbundin verkefni á sviði arkitekta og innanhússarkitekta, ss. hönnun nýbygginga,
endurhönnun eldri bygginga, hönnun húsgagna, skipulag eldri byggðar og nýbyggingasvæða, hönnunarstjórn ofl.
Undanfarin ár hefur starfsmannafjöldi stofunnar verið um 20 og tímabundið meiri eftir verkefnum. Stofan hefur því skipað sér í flokk
stærstu arkitektastofa landsins sem hafa farið stækkandi undanfarinn áratug.
Verkefni stofunnar hafa að miklum meirihluta verið unnin fyrir fyrirtæki og sveitarfélög en einnig einstaklinga.
Arkitektar sf var stofnað í upphafi árs 1999 og tók þá við rekstri eldri félaga sem verið höfðu í eigu Árna, Páls og Valdimars frá árinu 1987 en Júlía og Helgi Már störfuðu hjá því félagi frá stofnun þess og þar til þau gerðust meðeigendur með stofnun Arkitekta Skógarhlíð ehf 1999. Teiknistofan starfaði fyrstu árin á Laufásvegi 19 en 1992 fluttist hún í eigið húsnæði í Skógarhlíð 18. Í febrúar 2005 sameinuðust Arcus ehf (Hörður Harðarson og Þorsteinn Helgason) og Arkitektar Skógarhlíð ehf undir nafninu ASK Arkitektar ehf. Í júlí 2007 seldi Hörður sinn hlut í ASK arkitektum en Sigríður og Sigurlaug bættust í hóp eigenda.
Eigendur ASK Arkitekta eru:
Árni Friðriksson arkitekt F.A.Í.
Gunnar Borgarsson arkitekt
Gunnar Örn Sigurðsson arkitekt F.A.Í.
Helgi Már Halldórsson arkitekt F.A.Í.
Júlía P. Andersen innanhússarkitekt F.H.I.
Páll Gunnlaugsson arkitekt F.A.Í.
Sigríður Halldórsdóttir arkitekt F.A.Í.
Sigurlaug Sigurjónsdóttir arkitekt F.A.Í.
Valdimar Harðarson arkitekt F.A.Í.
Þorsteinn Helgason arkitekt F.A.Í.Framkvæmdastjóri ASK er Páll Gunnlaugsson.
Almennar upplýsingar sbr. lög nr. 30/2002 :
Heiti í hlutafélaga- og firmaskrá: ASK arkitektar ehf
Kennitala: 420299-2069
Aðsetur: Geirsgötu 9, 101 Reykjavík
Sími: 515 0300
Fax: 515 0319
Veffang: http://www.ask.is/
Tölvupóstur: ask@ask.is
VSK númer: 61196
Bankareikningur: 515-26-13544
Arkitektar sem starfa hjá ASK hafa leyfi Umhverfisráðuneytisins til að nota starfsheitið "Arkitekt". Arkitektar í
eigendahópi ASK hafa jafnframt leyfi til gerðar aðaluppdrátta skv. skipulags- og
byggingarlögum og tilheyrandi skyldutryggingar.
Eigendur ASK eru félagar í Arkitektafélagi Íslands og Félagi
húsgagna- og innanhússarkitekta og fylgja þeim siðareglum sem félögin setja sér.

