No items found.
Köllunarklettsreitur
Köllunarklettsreitur
Köllunarklettsreitur

Köllunarklettsreitur

ÁR:
Staðsetning:
Flokkur:
STAÐA:
STÆRÐ:
2024
Reykjavík
Skipulag
Tillaga
120.000 m²

Mótun nýrrar byggðar í Köllunarkletti sækir innblástur í aðliggjandi hverfi og nálægð við verndarsvæði Laugarness. Leitast er við að gefa hverfinu heildstætt en sérstakt yfirbragð, sem verður kennileiti í umhverfinu. Byggðinni er að hluta skipt í tvo byggðarkjarna; austan og vestan Héðinsgötu. Austan Héðinsgötu er byggt í þéttum mannlegum mælikvarða 3-5 hæða byggðar, þó einhverjar byggingar rísi hærra. Byggð vestan Héðinsgötu er kröftugri og útýni yfir sundin blá látið móta byggðina. Lega Köllunarkletts, með Sæbraut að sunnan og Sundahöfn að norðan, mótar tillöguna að nokkru leyti. Samfelld byggð í jöðrum, sem skýlir minni, smágerðari byggð innan hverfis austan megin, á meðan hún skýlir sólríkum inngarði vestan Héðinsgötu. Innan hverfis er eins konar friðland; smágerðar byggingar, sólríkir inngarðar, gönguleiðir og leiksvæði.